| Upplýsingar: |
Kaup og uppsetning á þremur útidyrahurðum í kjallara fjölbýlishús
| Lýsing: |
Húsfélagið Hjallabraut 5 í Hafnarfirði vantar að kaupa nýjar útidyrahurðir í kjallara sameignar. Verkið felur í sér kaup á nýjum hurðum ásamt uppsetningu, og niðurrifi á þeim gömlu. Um ræðir þrennar hurðir, tvær til norðurs og eina til suðurs. Þær dyr sem snúa til suðurs eru 191 cm á hæð og um 150 cm á breidd (sjá mynd 1). Dyrnar til norðurs eru tvær, önnur að sorpgeymslu og hin í inngangnum. Þær eru báðar af sömu stærð, 201 cm á hæð og 98 cm á breidd (sjá mynd 2). Dyrnar að sorpgeymslunni eru eins og sú í inngagnum nema hurðin er án glers. Það gler sem er í hurðum núna er glært gegnsætt gler en til greinar kemur að fá ógangsætt gler í þess stað. Leitað er eftir tilboði sem felur í sér heildarlausn á þessu verki.
Ef verktaka finnst vanta frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við verkkaupa í síma: 8939336 | | Myndir: |
| Verkflokkur: |
Hús, íbúðir og atvinnuhúsnæði -> Hurðir og gluggar
Hús, íbúðir og atvinnuhúsnæði -> Viðgerðir/viðhald húsa |
| |