Handtak.is
Handtak.is var stofnað árið 2003 og var í eigu Notando ehf. Vefurinn og gagnagrunnurinn var tekin til endurskoðunar og uppfærður í ársbyrjun 2011 eftir að aðrir eigendur tóku við honum.
Hvaða verkkaupi kannast ekki við það, hve erfitt það getur reynst að fá réttan aðila í verkefni sem þarf að leysa? Hvaða iðnaðarmaður/þjónustuaðili kannast ekki við það hve erfitt það getur verið að finna verkkaupa og vera í samskiptum við hann. Með það að leiðarljósi varð hugmyndin að Handtak.is til. Vefsvæði og gagnagrunnur þar sem hægt væri að skrá lýsingu á verkum sem þyrfti að framkvæma og fá tilboð í það frá þjónustuaðilum með sérhæfingu á viðkomandi sviði.
Handtak.is stefnir að því að verða aðalmarkaðurinn á milli fagmanna á fjölbreytilegum sviðum og þeirra sem leita eftir góðri þjónustu. Áhersla verður lögð á góð vinnubrögð, hagstætt verð, þægindi og einfaldleika þannig að hver sem er geti notað Handtak.is.
Góð reynsla er kominn á gagnagruninn og er hann búinn að vera í þróun síðan 2003.
Aðsetur er í Reykjanesbæ.
Netfang: handtak@handtak.is
Kt: 480110-1100